Til hvers að gerast félagi í CAIS?
Til að tryggja og efla tengsl við þá sem eiga í viðskiptum við Kanada eða hafa hug á því. Markmið ráðsins er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Kanada og Íslands, ásamt því að efla tengsl á sviðum menntunar og menningar .
Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir, lítil eða stór, geta gerst félagar í CAIS. Ráðið er vettvangur sem nýtist til að vinna að hvers konar framförum, að bættu starfsumhverfi og betri tengslum.
Öflugur hópur félaga eflir og styrkir vinnu ráðsins með stjórnvöldum og stofnunum, þínu fyrirtæki til framdráttar. Með aðild getur þú haft áhrif á verkefni og starfsemi ráðsins.
Einstaklingar: 15.000 kr.
Fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn: 45.000 kr.
Fyrirtæki með fleiri en 50 starfsmenn: 95.000 kr.
Umsókn um aðild
Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið (CAIS)
Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35, 5. hæð
105 Reykjavík