Um okkur.
Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið var stofnað
árið 2025. Ráðið eflir og viðheldur viðskiptatengslum milli Kanada og Íslands, ásamt því að efla tengsl á sviðum menntunar, menningar og viðskipta.
Það er tengslanet fyrirtækja, stofnana og einstaklinga og er
vettvangur fyrir samskipti við hið opinbera. Ráðið er vettvangur til að fjalla opinberlega um hagsmunamál í viðskiptum Kanada og Íslands auk þess að flytja á milli þekkingu, stefnur og strauma í málum er snerta viðskipti milli Kanada og
Íslands.
Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið skipuleggur fundi og ráðstefnur er varða almenn málefni landanna tveggja og stendur vörð um viðskiptatengda hagsmuni félaga sinna gagnvart kanadískum og íslenskum yfirvöldum.

Stjórn CAIS.
Formaður:
Guðmundur Óskarsson, Kerecis
Stjórn CAIS:
Anne-Marie Tremblay-Quennville, Icelandair
Eliza Reid, Rithöfundur, frumkvöðull og fyrrverandi forsetafrú
Jóhannes Gíslason, Biomar
Kristjana M. Kristjánsdóttir
Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Íslandsstofa
Sæmundur K. Finnbogason, Ráðgjafi
Rúnar Jónsson, Arion Banki
Kanadísk-íslenska viðskiptaráðið (CAIS)
Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35, 5. hæð
105 Reykjavík